Eftirherma er skemmtikraftur sem skemmtir fólki með því að herma eftir frægum og/eða þjóðþekktum einstaklingum. Mjög algengt er að eftirhermur taki einnig að sér hina ýmsu skemmtun og veislustjórn, enda eru þetta yfirleitt leikarar eða mjög fyndnir einstaklingar, vel til þess fallnir að halda uppi góðri stemmningu. Hér á Íslandi eru mjög margar færar eftirhermur og á sama tíma á nægu að taka hvað varðar þjóðþekkta einstaklinga til að herma eftir!
Sá sem kemur fyrst upp í huga mér þegar ég hugsa um íslenskar eftirhermur er Laddi. Hann er algjör snillingur í faginu! Hér er myndbrot af honum að sýna listir sínar:
Annar góður er Hjálmar Hjálmarsson, hér er ágætis runa frá honum:
Ég get ímyndað mér að það að herma eftir örðum sé góð tjáningaleið fyrir feimið fólk. Þá fær það útrás en getur svolítið „falið sig" á bak við aðra karaktera. Þetta held ég að hljóti að eiga við Ladda, en hann er víst óskaplega feiminn maður. Það sést nú samt alls ekki þegar hann dettur í eftirhermurnar!
Heimildir: Youtube!
