Recently in Dans Category

Dans

| 6 Comments | No TrackBacks

 Dans er samsetning líkamshreyfinga sem er oft ætluð til tjáningar, hvort sem er í tengslum við almenna afþreyingu, í trúarlegum tilgangi, sem sýningaratburður eða við aðrar aðstæður. Margir sagnfræðingar aðhyllast raunar þá kenningu að dans hafi upphaflega verið af trúarlegum toga, þótt ekki sé vitað hvernig frummaðurinn dansaði.

Elstu heimildir um dansiðkun eru taldar allt að 25.000 ára gamlar og er að finna á hellamálverkum í Suður-Evrópu og Austurlöndum nær. 

Forn-Egyptar skildu einnig eftir sig miklar heimildir um dans, á veggjum pýramída og öðrum fornminjum.

Hin kristna kirkja var mjög andvíg dansi á miðöldum og allt fram á nítjándu öld. Bann hennar gegn dansi varð til þess að dans hvarf víða og samfélög töpuðu aldagömlum danshefðum sínum.

Margir af þekktustu fræðimönnum sögunnar hafa fjallað um dans, af vangaveltum þeirra má ráða að dans sé mikilvægur hluti margra samfélaga, sem kemur heim og saman við að dans má finna næstum hvar sem er í heiminum. Sums staðar er dans raunar svo mikilvægur hluti samfélagsins að hann tengist merkustu athöfnum þess nánum böndum. Nefna má dansa fæðingar, vígsluathafna, frjósemi, kvonbæna, hjónabands, dauða og greftrunar. Rétt eins og dans er ólíkur meðal mismunandi ættbálka Afríku og Ameríku voru dansar í Evrópu mismunandi frá einum stað til annars.

Tónlist er notuð í tengslum við dans og er þá algengt að danshreyfingarnar séu lagaðar að hrynjandi tónlistarinnar. 


 

Heimild

www.visindavefurinn.is

http://www.youtube.com/watch?v=vzChjnlrsGg&feature=relmfu

 

 

About this Archive

This page is an archive of recent entries in the Dans category.

Hlátur is the next category.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.