Helstu jafnvægis- og hreyfiskynfæri okkar eru í fordyri innra eyrans. Þessi skynfæri kallast posti og skjóða og eru himnusekkir fylltir vökva og innihalda hreyfiskynhár sem virka líkt og hallamál. Vökvinn færist til með hreyfingum líkamans og sveigir um leið skynhár á frumunum. Heilinn fær boð um bognun skynháranna og vinnur úr þeim upplýsingar um í hvaða átt líkaminn hreyfist.
Heilinn fær þó einnig upplýsingar frá augum, til dæmis um hvort við erum kyrr í samanburði við umhverfið. Þrýstinemar í húð senda heilanum upplýsingar um hvaða líkamshlutar snerta jörðina og nemar í vöðvum og sinum láta hann vita hvaða líkamshlutar hreyfast hverju sinni. Heilinn og mænan vinna úr öllum þessum mismunandi upplýsingum og túlka þær í heildarmynd af því sem er á seyði.
Ferðaveiki kemur upp þegar heilinn nær ekki að samrýma allar upplýsingar. Ef lesin er bók í bíl senda skynfæri innra eyrans boð um hreyfingu, augun sjá aftur á móti aðeins kyrrstæða bók og senda boð í samræmi við það til heilans. Þegar upplýsingarnar samræmast ekki eins og í þessu tilviki verður afleiðingin vanlíðan sem þekkt er sem bílveiki.
Dr. Alfred A. Tomatis, franskur háls-, nef og eyrnalæknir, rannsakaði að eyrað og jafnvægiskerfið eru ekki aðeins tæki til að heyra og standa upprétt. Hann vill meina að örvunin sem kemur frá eyranu til heilans, ráði orkustreymi til heilans. Hljóð breytist í rafboð sem flytjast frá innra eyranu með heyrnartauginni til heilabarkarins, sem dreifir þeim um allan líkamann. Þetta örvar allt kerfið og ræður vöðvaslökun og spennu.
Eyrað er greinilega margslungið og stjórnar ýmsu í okkar fari.
Í meðfylgjandi myndbandi er sýnd leið fyrir fólk sem er ekki með jafnvægisskyn í eyranu og þarf að styjast við sjón og snertingu til að halda jafnvægi. Til er tæki til að þjálfa og örva jafnvægið þannig að það haldi jafnvæginu betur.
Heimildir
http://www.lesblind.is/verkblinda/um-verkblindu/
http://www.doktor.is/index.php?do=view_grein&id_grein=4628&option=com_d-greinar
http://www.fisis.is/index.php?option=com_content&task=view&id=719&Itemid=37
Myndband
