Recently in Litblinda Category

Litblinda - V1

| 4 Comments | No TrackBacks

Litblinda er, eins og nafnið gefur til kynna, ástand sem lýsir sér þannig að einstaklingur á erfitt með að greina á milli lita sem hann sér. Ástæða litblindu getur verið margvísleg og eru einkennin mismunandi eftir því. Getur hún t.d. verið arfgeng eða áunnin vegna sjúkdóms og ýmist hálfgerð (hefur aðeins áhrif á skynjun ákveðinna lita) eða fullkomin (hefur áhrif á skynjun allra lita). Litblinda af völdum sjúkdóms kemur aðeins fram á því auga sem er sýkt og getur hún versnað með tímanum. Arfgeng litblinda er hinsvegar á báðum augum og versnar hún ekki.

Um 7-10% karla eru litblindir, en aðeins um 0,5% kvenna. Ástæðan fyrir þessum mun er sú að konur hafa tvo X-litninga og þurfa þeir báðir að vera gallaðir til að litblinda komi fram. Karlar hafa hinsvegar aðeins einn X-litning og verður gallinn því ríkjandi hjá þeim. Það er því mjög algengt að sonur erfi litblindu frá móður sinni, þó hún hafi ekki verið litblind. Hún hefur þá borið gallann án þess að hann yrði ríkjandi. Þannig getur litblinda gengið í ættir en aðeins komið fram hjá körlunum.

Rauður, grænn og blár eru frumlitirnir þrír. Til að greina þessa liti notum við svokallaðar keilur sem staðsettar eru um miðbik augans. Keilurnar eru þrjár, ein fyrir hvern lit. Hjá litblindum eru ýmist gallaðar keilur af einni eða fleiri gerðum og er misjafnt hve mikið vantar af nemunum. Algengast er skortur á græn-nemanum hjá litblindum einstaklingum en sjaldgæfast er hinsvegar skortur á blá-nemanum. Genið fyrir bláu keilurnar er nefnilega ekki staðsett á X-litningi eins og ég skýrði frá áðan, heldur er það á litningi númer sjö. Sá litningur erfist jafnt til beggja kynja frá báðum foreldrum og verða einstaklingar af báðum kynjum að vera arfhreinir til að erfa þennan galla. Í örfáum tilfellum er það líka til að einstakling skorti uppá allar þrjár keilurnar, en það er afar sjaldgæft og eru þeir einstaklingar verulega sjónskertir.

Til að greina litblindu eru notuð sérstök litaspjöld, svokallaðar Ishihara litaprófstöflur. Ekki er hægt að lækna litblindu.

Hér má sjá dæmi um hvernig litblindir sjá ákveðnar myndir:

http://www.vischeck.com/examples/

 

Heimildir:

http://vefir.multimedia.is/hafdis/lit/litblinda.htm

http://www.doktor.is/index.php?option=com_d-greinar&Itemid=36&do=view_grein&id_grein=4471

http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=2121

http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4764

Val fyrir verkefni 1 - litblinda

| No Comments | No TrackBacks
Sæl, ég ætla að taka fyrir litblindu í fyrsta verkefninu. Mér skilst það eigi að láta vita af því hér. Er það ekki örugglega rétt hjá mér? :)

Categories

Pages

Powered by Movable Type 5.04

About this Archive

This page is an archive of recent entries in the Litblinda category.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.