Módel fyrir samtímalistasöguna

| 3 Comments

sharkart.jpgÍ vikunni sem leið hélt ég fyrirlestur í viðskiptadeild HÍ.  Lesturinn fjallaði um breytt módel eða listkerfi sem notast er við til að skrá samtímalistasögu.

Ég hef hugsað mér að melda lesturinn annarsstaðar í breyttri mynd og vonast til að hann þróist út frá umræðu sem skapast á hverjum stað.

 

Í 250 ár höfum við metið listgildið út frá módeli sem sem byggir á forrómantískri fagurfræði og frumkvöðlahugmynd (Sjá t.d. Listkerfi nútímans eftir Paul Oscar Kristeller og  Likeness and Being: The image before the era of art eftir Hans Belting).  Þetta módel varð undirstaða þess að við gátum skráð sannfærandi listasögu (sem kann samt að vera kolvitlaus) og var notað sem viðmið til að ákvarða mikilvægi listamanna í listasögunni.  Þetta módel er nú úrelt þar sem fagurfræði og frumkvöðlahugmynd er ekki lengur mælikvarði á listgildið.  Við höfum nú annað listkerfi og annarskonar pýramídastrúktúr.

 

Í nýlegri bók, The $ 12 million stuffed shark: The Curious economics of contemporary art , leggur Breski hagfræðingurinn Don Thompson til nýtt viðmið og stigveldi sem hann kallar „gallerípýramídann".  Pýramídinn virkar þannig að listamaður byrjar að sýna hjá litlu lókal galleríi og stígur svo upp þrepin.  Eftir því sem hann kemst að hjá betri galleríum á hann betri möguleika á safnasýningum (galleríin eru brú yfir til safnanna) og um leið styrkist staða hans í samtímalistasögunni og verðgildi á verkum hans hækka. 

 

Thompson nefnir 20 gallerí á toppi pýramídans, Gagosian, White Cube, Pace Wildenstein o.fl.  þetta eru galleríin sem höndla listamenn eins og Damien Hirst, Neo Rauch, Luc Tuymans, Gerhard Richter, Tracey Emin, Cindy Sherman og Jeff Koons.

 

Thompson fullyrðir að ef listamaður er ekki vörumerktur hjá galleríi þá er hann ómerkingur í listheiminum.

 

Í þessu vekur áhuga minn, sem myndlistarmann og gagnrýnanda, að skrásetning á listasögunni er ekki í höndum sömu stétta og áður. Þ.e. að í eina tíð gegndu gagnrýnendur og listfræðingar lykilhlutverki í skrásetningunni en eftir að listmarkaðurinn tók kipp á níunda áratugnum og óx síðan með ógnarhraða hafa hlutverk og völd innan listheimsins færst til.

Gagnrýnendur og listfræðingar hafa í raun ekkert um þetta ferli að segja. Stigveldið ræðst algerlega af markaðnum og skrásetning samtímalistasögunnar byggist þar af leiðandi á velgengni listamanna á listmarkaði og ferilskrá þeirra.  Listgildið, sem áður var metið út frá fegurðargildi, miðast nú við markaðsgildi og skráning samtímalistasögunnar er í höndum sýningarstjóra, galleríista og listaverkasafnara.

3 Comments

Þetta er áhugaverð pæling og margt til í þessu. Hér má m.a. finna ástæður fyrir oft litlausu og lítið ógnandi listaáferð í borgum á borð við New York og London. Hins vegar er spurning hvort þetta eigi eins við í löndum þar sem fjármagnsvaldið er ekki eins yfirþyrmandi, eins og á Norðulöndum og í Kanada. Þar ímynda ég mér að fagstofnanir séu enn visst mótvægi við fjármagnsstýrðu öflin. Væri e.t.v. áhugavert, Ransu, að fá úttekt þína á stöðunni hér á landi í þessu samhengi, til samanburðar.

Þetta finnst mér spennandi málefni. Markaðurinn gleypti hákarlinn og við fylgdumst með. Eitthvað klikkað við þetta allt eins og t.d. þegar demantahauskúpan seldist á uppboðinu. Svo spillt en ævintýralega hástemmt. Meira eins og hauskúpan væri að kaupa ómerkilega seðla sem höfðu þykjustunni verðmætagildi, væru bara tákn. Um leið veit maður að aðeins 8 klst. flug í austur, vestur og suður af Lundúnum gerir einn seðill gæfumuninn upp á líf og dauða, mat,lyf og lækningu barna.
Mér finnst myndlistin og matið á henni í svo mörgum lögum, þversum og langsum. Eiginlega eins og köflótt skotapils.
Þegar ég skoða myndlistarblöð eða myndlist á netinu þá er ég agndofa yfir fjölbreytileika myndlistarinnar, myndanna.
Svo hættir maður aldrei að falla í stafi yfir eldri myndlist áður en listin varð merkjavara. Ég meina egypska og persneska list. Mér leiðast merkjavörur og ég er ekki alveg sátt við þá staðreynd að myndlist er merkjavara. Hvernig er hægt að dýpka, efla, hina "fagurfræðilegu" upplifun á myndlist og hætta þessum búðaleik. Ég hef látið mér detta í hug myndlistarsamsýningu þar sem höfunda verkanna væri ekki getið með nafni.

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Ransu published on February 10, 2010 10:55 AM.

Júróvisjónkjólalist is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Categories

Pages

Powered by Movable Type 5.01