Erna G.S SÍMari maímánaðar

| Engar aths. | Engin vísun

IMG_0037-1.jpgÍ SÍM húsinu sýni ég hluta úr tveimur ljósmyndaröðum. Sú fyrri "Andartak og minningar" er frá árinu 2004 og er enn í vinnslu. Verkið hefur ekki birst í heild sinni en hluti þess hefur verið sýndur víða á sýningum hér heima og erlendis. Seinni ljósmyndaröðin "Tilviljanakennd augnablik" var unnin árið 2009 og var hluti hennar birtur reglulega á listabloggi ArtReview,
http://www.artreview.com/profile/ErnaGS

Ég hef verið að vinna með ljósmyndir frá árinu 2004, en vinn og sýni málverk jafnhliða þeim. Ég er vinn ýmist með efnivið minninga, daglegs lífs eða hvorutveggja. Þar sem fléttast saman persónulegt líf, þjóðfélagsumhverfi, menning, pólitík, tilfinningar, hugsanir o.fl. Augnablikið er mér hugleikið þar sem vinnuferlið sjálft skapar verkið. Tiltekið augnablik umbreytist, bæði í mynd og hugmyndalega og oft er unnið aftur og aftur með sömu ljósmynd þannig að verkin verða margræðari.

Sýningin stendur frá 5.- 26. maí, Hafnarstræti 16, Reykjavík.
Opnunartími er mán-fös 10.00-16.00
http://sim.is/Index/Islenska/Frettir/Syningarigangi/ 

Engar vísanir

Vísun (URL): http://fugl.is/cgi-bin/mt/mt-tb.cgi/130

Skrifaðu athugasemd

Efnisflokkar

Vefsíður

Keyrt á Movable Type 5.02