Main

12. febrúar, 2008

Staðreyndir um höfundarrétt

Nú stendur til að gerðar verði breytingar á höfundarréttarlögum á Íslandi. Líklegt er að nú, sem fyrr, verði breytingin í þá átt að þjóna hagsmunum iðnaðarframleiðslu, en ekki listamanna og höfunda þótt yfirlýst markmið höfundarréttarlaga sé að gæta hagsmuna þeirra. Þar sem gagnrýni í listum (og á listum) tengist tjáningarfrelsi, og þar sem höfundarréttarvörn í þágu iðnaðar hefur yfirleytt þau áhrif að skerða tjáningarfrelsi einstaklinga, telur FUGL rétt að koma inn í umræðuna á þessu stigi og benda á nokkur atriði sem máli skipta fyrir höfunda í tengslum við höfundarétt.

Lesa meir/Continue "Staðreyndir um höfundarrétt" »

17. september, 2007

Sjónlist er ekki til

Það hefur lengi verið áhugaverð iðja á Íslandi að búa til ný orð til að reyna að túlka hugmyndir, skoðanir og álit manna, auk þess að þýða ýmis hugtök sem menn í útlöndum hafa yfir hugmyndir sínar og eiga sér ekki endilega samsvörun í íslensku. Oft tekst mönnum vel upp með orðsmíðar, en oftar en ekki verða til skrýtin hugtök sem heldur minna á skuggabaldur en almennileg dýr. Þetta á sér sér í lagi stað þegar menn reyna að sameina undir einn hatt hluti sem ekki er sjálfgefið að eigi heima saman. Sjónlist er eitt af þessum nýyrðum sem sprottið hafa upp að undanförnu. Það virðist saklaust við fyrstu sýn - tilraun til að steypa myndlist og hönnun saman í einn flokk - en því miður felast í orðinu 'sjónlist' óheppilegar vísanir sem gera það að verkum að dæmið gengur ekki upp: Í þeirri mynd sem reynt er að nota orðið 'sjónlist' verður það því miður innantómt, og þess vegna nær að halda því fram að sjónlist sé ekki til!

Lesa meir/Continue "Sjónlist er ekki til" »

19. nóvember, 2006

'Astroturf' í Nýló

Nú um helgina var opnuð sjöunda árið í röð í Nýlístasafninu sýning sem ber yfirskriftina 'Grasrót'. Sýningar þessar hafa undanfarin ár skapað sér sess í íslensku listalífi en nú hafa stjórnendur safnsins valið að leggja nýja merkingu í gjörninginn og er í því samhengi áhugavert að skoða þá framkvæmd með tilliti til sögu sýningarraðarinnar og til þeirra hefða sem skapast hafa í kringum hana, en ekki síður út frá merkingu hugtaksins 'grasrót' og tengingu þess við íslenskt myndlistarlíf og umræðu í samhengi Nýló í gegnum tíðina.

Lesa meir/Continue "'Astroturf' í Nýló" »

13. maí, 2006

Robin Peck Ás

ÁS

Ás: miðjusett gat í hjóli sem teinanir eru festir við og sem öxullinn fer í gegnum.

Skúlptúr Hannesar Lárussonar, Ás, er stórt[1] 1200 kílóa grjót. Úr grjótinu ganga 11 stálteinar, hver 22 mm á þykkt. Teinarnir eru beygðir upp á við og mynda þannig tvöfalt rétt horn út frá öxlinum. Teinarnir eru handföng sem 11 þátttakendur lyfta til að snúa þungu grjótinu.

Lesa meir/Continue "Robin Peck Ás" »