« FUGL 15 - Einar Garibaldi EiríkssonForsíða/MainList á opinberum vettvangi »

Stillansar Annanna í Nýló

Onnusyning_icon.jpg Laugardaginn 12. febrúar opnuðu Anna Guðjónsdóttir, Anna Hallin (FUGL 04) og Anna Líndal (FUGL 19) sýningu í Nýlo. Á sýningunni unnu þær þétt saman og byggðu sameiginlegan strúktúr í rýminu með stillansa sem þema sem skapaði öflugan bakgrunn fyrir verk þeirra sjálfra.
Nylo_Onnusyning_110206_01.jpg
Mikið var um að vera í Nýló um helgina, enda ekki á hverjum degi sem þrjár Önnur taka sig til og skipuleggja samsýningu. Inn um gluggann sést að sýningin byggir á heilmiklu burðarvirki úr timbri, enda er yfirheit sýningarinnar Stillansar.
Nylo_Onnusyning_110206_02.jpg
Þegar inn er komið blasir við mannfjöldinn, ýmist að spjalla saman eða að skoða sýninguna. Það er gaman að sjá hvað opnanir í Nýlistasafninu trekkja að marga áhorfendur.
Nylo_Onnusyning_110206_03.jpg
Anna Líndal (FUGL 19) er ein Annanna sem er að sýna. Hér ræðir hún við Hannes Lárusson (FUGL 01) um uppsetninguna á sýningunni.
Nylo_Onnusyning_110206_04.jpg
Það hefur hingað til viljað há samsýningum í hinu nýja Nýlistasafni að fólki hefur reynst erfitt að ná heildarbragi á þær. Of margar hafa verið vandræðalegar í rýminu, verkin eins og hráviði hér og þar. Það er hins vegar greiilegt að Anna Líndal (FUGL 19), Anna Hallin (FUGL 4) og Anna Guðjóns hafa lagt í að vinna stíl sýningarinnar í sameiningu. Það er athlyglisvert að þótt verk þeirra innbyrðis séu æði ólík, þá ná þær að skapa hráa umgjörð um sýninguna sem þjónar þeim tilgangi að verða bakgrunnur allra verkanna og jafnframt rýmisleg stoð við verkin. Hér sjáum við í gegnum grindina hvar hjónakornin Anna Hallin og Olga Bergmann skeggræða verk Önnu.
Nylo_Onnusyning_110206_05.jpg
Hér ræða nokkrar af fremstu listakonum okkar saman, með þráðverk Önnu Líndal í bakgrunni. Björk Guðnadóttir (FUGL 16), Sólveig Aðalsteinsdóttir til vinstri og til hægri virðist Eygló Harðardóttir (FUGL 05) hafa mikið álit á því sem Anna Guðjónsdottir hefur fram að færa.
Nylo_Onnusyning_110206_06.jpg
Steingrímur Eyfjörð spjallar við ungan listunnanda með teikningar Önnu Hallin í bakgrunni.
Nylo_Onnusyning_110206_07.jpg
Málverk Önnu Guðjónsdóttur er sérstætt, minnir um margt á kínverskar teikningar þar sem fjarlægð er túlkuð með því að setja hlutina ofar í myndflötinn. Gróf innrömmun myndarinnar í svörtum pensilstrokum og rautt yfirmalverkið brjóta þó tálmynd flatarins.
Nylo_Onnusyning_110206_08.jpg
Hér stendur Anna Guðjónsdóttir fyrir framan hitt málverkið, en þar er hún að vinna með rýmishugsun sem meir er í stíl við  stífa uppbyggingu frum-endurreisnar, táknin fyrir rýmið til staðar en ekki trúverðugleikinn. Byggingareinkenni verka Önnu vinna einnig vel með raunrúmtakinu sem er til staðar í stillönsunum í rýminu.
Nylo_Onnusyning_110206_09.jpg
Anna Líndal (FUGL 19) sýnir verk á sýningunni þar sem þræðir og tengingar virðast vera lykilhugmyndin. Hún vefur tvinna, eins og henni er einni lagið, hér og þar um burðargrindur rýmisins, tengir og afmarkar sér þannig svæði um allt safnið. Hluti af verkum hennar er hinsvegar þráðlist þar sem hún kortleggur kortlagningu vísindamanna, býr til innritaðan flöt (dúk) út frá því sem vísindamaðurinn kortleggur í sýndarrými landsins, í raunveruleikanum. Samhliða raunverulegum þráðum sem koma fyrir í verkinu liðast snúrur kvikmyndabúnaðarins um stillansa sýningarinnar og í kvikmyndunum verður tækni vísindamannanna að einskonar leiðarhnoði eins og hnyklarnir sem íslendingar notuðu í þjöðsögunum til að komast leiðar til áfangastaðar sem þeir þekktu ekki.
Nylo_Onnusyning_110206_10.jpg
Myndtækið er gróflega fest við undirstöðuna og áhorfandinn fylgist með hvernig landið birtist í kvikmyndinni.
Nylo_Onnusyning_110206_11.jpg
Curver, nýskírður, lætur sig ekki vanta á sýningunni og veltir fyrir sér þeirri mynd sem tæknibúnaðurinn flytur.
Nylo_Onnusyning_110206_12.jpg
Liðið á opnunina og Kristín Reynisdóttir og Olga Bergmann taka óspart þátt í gleði Önnu Hallin (FUGL 04) (í miðið) með vel heppnaða framkvæmd.
Nylo_Onnusyning_110206_13.jpg
Teikningar Önnu Hallin virðast nokkuð eðlileg framlenging á hráum stillansanum. Hún vinnur sem fyrr á skissukenndan hátt þar sem mannleg lífform þróast og tímgast í myndfletinum.
Nylo_Onnusyning_110206_14.jpg
Unga kynslóðin lætur sig ekki vanta á sýningar í Nýló. Svo virðist sem hressilegur lífkrafturinn í myndum Önnu Hallinn veki ástúðlegar tilfinningar í vinahópnum.
Nylo_Onnusyning_110206_15.jpg
Hluti sýningar Önnu Hallin eru teikningar hennar, en annar þáttur vinnur með byggingarhugmynd rýmisins sem þær Önnurnar eru búnar að skapa í safninu. Hér byggir hún upp 'málverk' úr fíngerðum tónum málningar og flekum sem festir eru á burðarvirkið. Teikningarnar rjúfa þennan flöt en einnig koma fyrir hlutir eins og loftræstigrillið í flekanum til vinstri sem verða atriði í myndbyggingunni.
Nylo_Onnusyning_110206_16.jpg
Hér, að lokum, sjáum við Curver og Ingólf Arnarson í gegnum burðarvirkið sem hér heldur uppi sjónvarpi með teiknimynd Önnu Hallin og fleti með teikningum eftir hana.
Nylo_Onnusyning_110206_17.jpg
Að lokinni opnun var búið að skipuleggja ferð í Djúp Hornsins, en þar var snæddur léttur kvöldverður og listamennirnir gátu haldið áfram að ræða afrakstur sýningarinnar með vinum sínum. Einar Garibaldi (FUGL 15) tekur sig vel út í forgrunni og Sara Björnsdóttir (FUGL 14) hallar sér upp að barborðinu með glas í hönd og skeggræðir atburði dagsins.
Nylo_Onnusyning_110206_18.jpg
Sköpunarþörfin er til staðar á Horninu eins og annarsstaðar. Hér framkvæmir Erling Klingenberg skúlptúrgjörning þar sem hann freistar þess að endurskapa 'endalausa súlu' Giacomettis úr vatnsglösunum á borðinu. Þetta endaði með ósköpum og sýnir hvað listin getur verið viðkvæm.
Nylo_Onnusyning_110206_19.jpg
Að lokum sjáum við fólk skála innilega, þessa hreyfingu er ómögulegt að frysta svo vel sé!

Skrifa athugasemd/Post a comment

Vinsamlegast láttu í ljósi skoðun þína hér á vefnum.