Markmið og aðferðir FUGLS
FUGL er félag um gagnrýna list.
Markmið félagsins er að efla gagnrýna list og listumræðu á Íslandi.
Aðferðir félagsins til að ofangreint megi nást eru:
- Skipulag sýningarviðburða í Reykjavík (Reykjavík Project Space) þar sem listamönnum gefst kostur á að setja upp innsetningar í samhengi borgarumhverfisins sem á áhrifaríkan hátt setja spurningu við list samtímans og eru til þess fallnar að virkja umræðu um list á Íslandi.
- Rekstur vefsíðu þar sem:
a. fjallað er um ofangreindar sýningar í gagnrýnu samhengi,
b. vettvangur er fyrir umræðu um gagnrýna list og tilgang gagnrýnnar listar í samtíma á Íslandi. - Virk þátttaka í verkefnum í alþjóðlegu samhengi sem hafa gagnrýna list að viðfangsefni.
Á árinu 2005 skipulagði FUGL 12 sýningar rekur sýningarrými í verslun Indriða klæðskera á Skólavörðustíg 10 í Reykjavík. Upplýsingar um þær er að finna á sérvef.
Frekari upplýsingar um starfsemina veitir:
Hlynur Helgason,
sími 661 8723
e-mail hlynur@bhs.is