Vettvangur listbloggs

Í tengslum við breyttar áherslur í þjóðfélaginu hefur komið fram aukin krafa um vitsmunalega umræðu á sviði lista og menningar. Margir listamenn hafa brugðist við þessu og kvatt sér hljóðs á bloggvettvangi með áhugaverð innlegg í umræðu líðandi stundar. Blogg þessi eru hinsvegar dreifð og sum þeirra undir umsjón vörsluaðila sem ekki er víst að öllum þyki spennandi að styðja við með ráði og dáð. Vegna þessa hefur komið upp sú ósk að skapaður verði öflugur vettvangur þar sem listbloggarar geti beitt sér og þar sem eftir þeim yrði tekið.

FUGL hefur ákveðið að taka þessari áskorun, enda vel í samræmi við yfirlýsta stefnu FUGLs um að beita sér í einu og öllu að því að efla gagnrýna umræðu um listir. Þótt framtak eins og R.Mutt hafi verið frábært í að efla umræðuna þá er einnig þörf á stað þar sem fólk getur haldið utan um efnið sitt á skipulegan hátt en samt verið visst um að það sem það skrifar vekur athygli og fær dreifingu.

FUGL býður því öllum sem hafa áhuga á að byggja upp sitt eigið blogg um listir á óháðum vettvangi að setja upp blogg á vefnum. Hver bloggari fær sitt eigið blogg sem hann getur vísað í og sett upp á sinn eigin hátt. Öll bloggin eru síðan tengd saman á forsíðu FUGLs. Þar eru endurbirtar nýjustu greinarnar, þar er hægt að fara í blogg einstakra félaga, þar er hægt að skoða efni eftir aldri, efnisáherslum og efnisflokkun. Hver listbloggari heldur sem sagt út sínum eigin vef, en þeir tengjast allir saman í efnisveitu á forsíðunni.

FUGL.is er gefinn út með Creative Commons leyfi, sem felur í sér að hver sem er má nýta sér efni af vefnum, breytt eða óbreytt, svo fremi sem hann getur hvaðan það er tekið, og að því tilskildu að það sé ekki í hagnaðarskyni. Það má því ekki nýta efnið í viðskiptatilgangi án þess að um það sé samið við einstaka höfunda.

Hver sem telur sig listbloggara getur tekið þátt. Einungis þarf að senda bréf með því að smella á hlynur(at)bhs.is. Þá fær viðkomandi sendar upplýsingar um aðgang um hæl og getur byrjað að listblogga að vild!